Glettur og gamanmál

Glettur og gamanmál 2012

Vilhjálmur Hjálmarsson, Villi á Brekku, er bæði góður sögumaður og mikill húmoristi.  Í þessari bók fer hann á kostum eins og svo oft áður og segir gamansögur af sér og samferðafólki sínu og stíga hér margir fram á sviðið, jafnt stjórnmálamenn sem aðrir. Hér kemur ein saga úr bókinni:

Það átti að vígja nýtt skólahús í Vík í Mýrdal kl. 14:00 á laugardegi auðvitað. Við Ágúst bílstjóri tókum daginn snemma. Ég hafði krotað niður kvöldið áður það sem ég ætlaði að segja. Við vorum komnir austur um hádegi og settumst inn á Víkurskála að fá okkur hressingu. En brátt er ég kvaddur í síma.

Í símanum er Jón Einarsson skólastjóri. Hann kvaðst hafa heyrt að ég væri kominn í plássið. Segist vera að vinna í nýja húsinu og spyr hvort ég hafi ekki gaman af að líta inn. Jú, ég játa því. Svo þurfi ég nú að fara heim með honum og snyrta mig fyrir vígsluna.

Jón svaraði og heldur seint að nógur tími væri að tala um það – hún væri áformuð eftir hálfan mánuð!

Mér brá hroðalega og þótti þetta flan mitt hið versta mál. Á leiðinni fram í matsal kom ég þó auga á ljósan punkt í stöðunni – verri hefði hún getað orðið! Margrét kona mín hafði neitað að koma með. Það var skárra! Ég spurði Ágúst hvort hann hefði nokkurn tíma farið með forvera mína, Gylfa Þ. og Magnús Torfa, fyrir boðaðan tíma. Hann hugsaði sig um og svaraði: „Ekki svona langt.

Leiðbeinandi verð: 3.980-.

Uppseld.

Útgáfuár: 2012
Efnisflokkun: Bækur, Bækur, Gamansögur

Panta

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is