Þann 8. mars 2020 á Þistilfirðingurinn Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður – Siddi gull, 85 ára afmæli. Þann dag kemur út á vegum Bókaútgáfunnar Hóla bók um hann, Siddi gull, skráð af Guðjóni Inga Eiríkssyni, og er hún í senn er æviminningar hans og afmælisrit.
Þetta er saga mikils baráttumanns, sem margt hefur mátt þola, en ávallt látið erfiðleikana efla sig og aldrei er húmorinn langt undan, eins og lesendur munu glöggt sjá við lestur bókarinnar.
Aftast í bókinni verður svokölluð „Heillaóskaskrá“ og þar getur fólk óskað Sigmari – Sidda gull – heilla og jafnframt skráð sig fyrir áskrift að bókinni. Verð hennar með vsk og sendingargjaldi verður 7.500 og greiðist fyrir 15 október nk. (krafa stofnuð í heimabanka eða greiðsluseðill verður sendur). Hægt er að skrá sig á netfangið holar@holabok.is eða í síma 557-5270.
Bókin verður svo send viðkomandi áskrifanda á útgáfudaginn (afmælisdaginn). Að sjálfsögðu geta hjón/feðgin/mæðgin og systkin skráð sig saman fyrir einni bók.
Síðastliðinn laugardag, þann 7. september, lést Bjarni E. Guðleifsson náttúrufræðingur, fjallgöngugarpur og rithöfundur, 77 ára að aldri. Hann var höfundur fjölmargra bóka sem Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út og má þar nefna Úr útiverunni, Á fjallatindum og sú allra nýjasta, Náttúruþankar (meðhöfundur er dóttir hans, Brynhildur), sem kom úr prentsmiðju aðeins nokkrum dögum fyrir andlát hans.
Að leiðarlokum vil ég þakka Bjarna fyrir ánægjulegt samstarf í gegnum árin og um leið og ég votta ættingjum hans samúð mína.
Bókin magnaða, Hvítabirnir á Íslandi, eftir Rósu Rut Þórisdóttur var í dag tilnefnd til Viðurkenninga Hagþenkis í flokki fræðirita sem út komu árið 2018. Sannarlega ánægjuleg tíðindi á þessum fallega janúardegi og til hamingju með áfangann, kæra Rósa.
Bókaútgáfan Hólar þakkar fyrir frábærar viðtökur á útgáfubókum sínum nú í ár og óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Vonar auðvitað um leið að sem flestir hafi tök á því að líta í bók/bækur um hátíðarnar.
Hvernig myndi þér líða ef þú stæðir allt í einu andspænis hvítabirni? Þetta hafa sumir Íslendingar illu heilli þurft að gera og ekki allir lifað það af.
Í bókinni Hvítabirnir á Íslandi er sagt frá landgöngum þessara grimmu skepna allt frá landnámsöld til okkar daga. Vitað er til þess að þær hafi drepið 30 manns, en stundum hafði þó mannskepnan betur og oft var slóðin blóði drifin eftir þær viðureignir.
Hvítabirnir á Íslandi - mögnuð bók sem þú verður að lesa!