Nýjar sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum

Útgáfuár: 2007

nyjar_sogur_ogÍ þessari bók stíga fjölmargir Vestmannaeyingar á stokk og láta mikið að sér kveða. Guðjón líkkistusmiður á Oddsstöðum slær máli á látna – og lifandi, Nýja í Suðurgarði fær undarlega sprautu frá Einari lækni og Mundi í Draumbæ ekur með prestsfrúna og fleira drasl. Stúkumaðurinn Tóti í Berjanesi fær sér einn lítinn, Bjarnhéðinn Elíasson flaggar og kona hans, Ingibjörg Johnsen, geymir jólaveltu blómabúðarinnar á óvenjulegum stað. Þórarinn í Geisla leitar að Óskari á Háeyri á hverri strippbúllunni á fætur annarri og Óli Gränz lætur taka af sér fermingarmynd þótt langt sé um liðið síðan hann fermdist.  Bogi í Eyjabúð fær gos, Gísli Óskarsson reiðist í símann og séra Bára veldur vonbrigðum.

Uppseld.

Tengsl: Efnisflokkun: Gamansögur

Án lyfseðils

Útgáfuár: 2006

an_lyfGamansögur af læknum, hjúkrunarfólki og sjúklingum.  Magnaðar sögur sem koma öllum í gott skap. Bjarni Jónasson læknir tók bókina saman og sýnir hér og sannar að doktorar hafa næmt auga fyrir hinu skoplega, ekki síður en táknmynd þeirra, Saxi læknir.

Hvað kallast hröð fæðing?  Jú, ÓÐAGOT!

Uppseld.

Efnisflokkun: Gamansögur

Suðurnesjaskop

Útgáfuár: 2006

sudurnesjaDagbjartur útgerðarmaður á sjö áhugamál, Arinbjörn læknir skrifar undir allt og Helgi S. Jónsson sýnir lífgun úr dauðadái með þeim afleiðingum að ekki rennur af tilraunabrúðunni í viku á eftir. Þessir snillingar og margir fleiri fara á kostum í þessari sprenghlægilegu bók.

Uppseld.

Tengsl: Efnisflokkun: Gamansögur

Bestu barnabrandararnir – magnað fjör

Útgáfuár: 2006

bb_magnad

Meiriháttar brandarar fyrir allan aldur.

Uppseld.

Efnisflokkun: Barnabækur, Gamansögur

Amen (eftir efninu)

Útgáfuár: 2005

amenLesið reynslusögur prestanna Agnesar M. Sigurðardóttur, Guðmundar Karls Brynjarssonar, Þórs Haukssonar, Gunnars Björnssonar, Cecils Haraldssonar, Birgis Ásgeirssonar og hvernig séra Vigfús Þór bjargaði skíðalandsmótinu – og þó ekki. Hjálmar Jónsson baunar á Pálma Matt. og Sigurður Ægisson fer víða. Og goðsagnirnar lifa, Baldur Vilhelmsson og Bjarni Jónsson.

Uppseld.

Efnisflokkun: Gamansögur

Því ekki að brosa

Útgáfuár: 2005

thvi_ekki_adSéra  Birgir Snæbjörnsson, prestur á Akureyri, dregur fram skemmtilegar stundir ævi sinnar og þær eru svo sannarlega broslegar.

Uppseld.

Tengsl: Efnisflokkun: Ævisögur og endurminningar, Gamansögur

Hve glöð er vor æska

Útgáfuár: 2004

hve_glodGullkornin sem ættuð eru frá börnum eru ótalmörg og bráðskemmtileg.  Í þessari bók er að finna fjölmörg slík og eru mörg þeirra úr leikskólakerfinu þar sem einlægnin er ósvikin.  Dásamleg bók um börnin okkar.

Uppseld.

Efnisflokkun: Gamansögur

Bestu barnabrandararnir – ógeðslega fyndnir

Útgáfuár: 2004

bb_ogedslegafyndnir

Skellihlátur frá fyrstu síðu til þeirrar síðustu.

Uppseld.

Efnisflokkun: Barnabækur, Gamansögur

Austfirsk skemmtiljóð

Útgáfuár: 2003

austfirskGaman- og kersknisbragir og hnyttnar vísur eftir austfirska hagyrðinga. Bók sem kemur fólki í gott skap.

Uppseld.

Efnisflokkun: Gamansögur, Ljóð og listir

Heimskupör og trúgirni

Útgáfuár: 2003

heimskuporÓtrúlegu mistök, trúgirni og klúður Íslendinga og annarra jarðarbúa er viðfangsefni þessarar bráðslemmtilegu bókar.

Uppseld.

Efnisflokkun: Gamansögur
Eldra Nýrra

Bókaútgáfan Hólar

Hagasel 14, 109 Reykjavík
Sími: 587 2619
Fax: 587 1180
Netfang: holar (hja) holabok.is